![]() |
| Formaður forvalsnefndar, Ingólfur Þórisson, kynnir niðurstöðu nefndarinnar. Gunnar Svavarsson formaður verkefnisstjórnar nýs Landspítala og Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra fylgjast með. Myndir:-áþj. |
| Teymi 1: 180 stig
Mannvit hf, ábyrgðaraðili teymis Arkís THG arkitektar Landmótun Samstarfsaðilar: Torgið Teiknistofa Rambøll Danmark Aarhus Arkitekterne Veðurvaktin |
Teymi 2: 180 stig
Almenna verkfræðistofan hf, ábyrgðaraðili teymis Arkitektur.is Basalt arkitektar Hnit verkfræðistofa Hornsteinar arkitektar Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar VSI öryggishönnun og ráðgjöf Samstarfsaðilar: Freyr Jóhannesson, byggingartæknifræðingur Steinar Sigurðsson, arkitekt Arup Amsterdam dJGA Tribal - Health |
Teymi 3: 180 stig
TBL arkitektar ehf, ábyrgðaraðili teymis Ferill – verkfræðistofa Raftákn John Cooper Architecture Origo arkitektgruppe AS COWI A/S Vinnuvernd HCP |
| Teymi 4: 180 stig
Verkís hf, ábyrgðaraðili teymis VA - arkitektar Arkþing arkitektar Úti og inni sf. Teiknistofa arkitekta Landslag Arkitema Arkitektar Grontmijr Carl Bro |
Teymi 5: 160 stig
Efla hf, ábyrgðaraðili teymis Ask arkitektar Bjarni Snæbjörnsson, arkitekt Kanon arkitektar Lagnatækni Landark Medplan Norconsult Teiknistofan Tröð |
![]() |
| Arkitektar og verkfræðingar í teymunum fimm fjölmenntu á kynnignarfundinn. |
Við mat á innsendum lausnum verður m.a. litið til arkitektúrs, ytra- og innra skipulags, áfangaskiptingar, sveigjanleika, tækni og tæknikerfa, umhverfissjónarmiða, byggingarkostnaðar, rekstrarkostnaðar bygginga og heildarhagkvæmni starfseminnar. Er ráðgert að sá þáttur vegi 80-90% af heildareinkunn en tilboð í hönnunarþóknun vegi 10-20%.
Gert er ráð fyrir að það teymið sem verður hlutskarpast í samkeppninni vinni að hönnun verkefnisins fram að einkaframkvæmdarútboði en starfi að því loknu við verkefnisstjórn og hönnunarrýni með verkkaupa. Hvert teymi sem skilar inn tillögu sem uppfyllir skilyrði keppnislýsingar og tekin er til dóms í hönnunarsamkeppninni fær greiddar 15 milljónir króna, án virðisaukaskatts, fyrir vinnu sína við tillögugerðina í samkeppninni.
Áætlaður kostnaður við nýbyggingu Landspítalans er um 33 milljarðar króna á verðlagi í mars 2009. Standa vonir til að framkvæmdir við hana geti hafist á síðari hluta árs 2011 og er áætlað að þær standi fram á árið 2016.
Forvalsnefnd hönnunarsamkeppninnar

Björn Zoëga, forstjóri Landspítala var vistaddur athöfnina í dag.
Forvalsnefnd hönnunarsamkeppni nýs Landspítala skipuðu: Ingólfur Þórisson, formaður forvalsnefndar og fulltrúi í verkefnisstjórn nýs Landspítala, Bergljót S. Einarsdóttir, arkitekt hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, Gyða Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur á Landspítala og fulltrúi í verkefnisstjórn nýs Landspítala, Ingjaldur Hannibalsson, prófessor við Háskóla Íslands og fulltrúi í verkefnisstjórn nýs Landspítala, og Vilborg Hauksdóttir, skrifsstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu og fulltrúi í verkefnisstjórn nýs Landspítala.