22. febrúar 2010

Fimm hönnunarteymum boðin þátttaka í samkeppni um nýjan Landspítala

Formaður forvalsnefndar, Ingólfur Þórisson, kynnir niðurstöðu nefndarinnar. Gunnar Svavarsson formaður verkefnisstjórnar nýs Landspítala og Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra fylgjast með. Myndir:-áþj.
Nú er ljóst að yfir 700 íslenskir sérfræðingar á byggingarsviði og flestar stærstu arkitekta- og verkfræðistofur landsins taka þátt í hönnunarsamkeppni nýs Landspítala við Hringbraut. Tilkynnt var um niðurstöður forvals samkeppninnar á kynningarfundi sem verkefnisstjórn nýs Landspítala efndi til í dag að viðstöddum heilbrigðisráðherra.

Alls bárust sjö umsóknir um þátttöku í forvali hönnunarsamkeppninnar og uppfylltu sex teymi tilskyldar hæfniskröfur. Fimm stigahæstu teymunum verður nú boðið að taka þátt í hönnunarsamkeppninni en ábyrgðaraðilar þeirra eru Mannvit hf., Almenna verkfræðistofan hf., TBL arkitektar ehf., Verkís hf. og Efla hf. Fjögur fyrstnefndu teymin hlutu fullt hús stiga í hæfismatinu, 180 stig, og fimmta teymið hlaut 160 stig en lágmarksstigafjöldi teymis til að teljast hæft var 135 stig. Þátttakendur í teymunum fimm eru:  

Teymi 1: 180 stig

Mannvit hf, ábyrgðaraðili teymis
Arkís
THG arkitektar
Landmótun
Samstarfsaðilar:
Torgið Teiknistofa
Rambøll Danmark
Aarhus Arkitekterne
Veðurvaktin
Teymi 2: 180 stig
Almenna verkfræðistofan hf, ábyrgðaraðili teymis
Arkitektur.is
Basalt arkitektar
Hnit verkfræðistofa
Hornsteinar arkitektar
Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar
VSI öryggishönnun og ráðgjöf
Samstarfsaðilar:
Freyr Jóhannesson, byggingartæknifræðingur
Steinar Sigurðsson, arkitekt
Arup Amsterdam
dJGA
Tribal - Health
Teymi 3: 180 stig
TBL arkitektar ehf, ábyrgðaraðili teymis
Ferill – verkfræðistofa
Raftákn
John Cooper Architecture
Origo arkitektgruppe AS
COWI A/S
Vinnuvernd
HCP
Teymi 4: 180 stig
Verkís hf, ábyrgðaraðili teymis
VA - arkitektar
Arkþing arkitektar
Úti og inni sf. Teiknistofa arkitekta
Landslag
Arkitema Arkitektar
Grontmijr Carl Bro
Teymi 5: 160 stig
Efla hf, ábyrgðaraðili teymis
Ask arkitektar
Bjarni Snæbjörnsson, arkitekt
Kanon arkitektar
Lagnatækni
Landark
Medplan
Norconsult
Teiknistofan Tröð


Arkitektar og verkfræðingar í teymunum fimm fjölmenntu á kynnignarfundinn. 
Á áttunda hundrað íslenskra sérfræðinga

Yfir 700 háskólamenntaðir íslenskir sérfræðingar á byggingarsviði, arkitektar, verkfræðingar, tæknifræðingar og fleiri stéttir, standa að teymunum fimm.

Forvalsnefndin mat hæfi umsækjendanna samkvæmt þeim skilyrðum sem sett voru fram í forvalsgögnunum og er það niðurstaða hennar að öll teymin fimm uppfylli mjög vel þær kröfur sem gerðar eru um starfsreynslu við hönnun stórra og meðalstórra bygginga, reynslu af stjórnun, háskólamenntun, vottað gæðakerfi, árangur í samkeppnum og fleira.

Skilafrestur í júní og úrslit í júlí 2010
Keppnislýsing hönnunarsamkeppninnar verður tilbúin 5. mars næstkomandi en skilafrestur er í byrjun júní 2010 og úrslit eiga að liggja fyrir mánuði seinna, eða í byrjun júlímánaðar.

Meginforsenda hönnunarsamkeppninnar er að ljúka sameiningu stóru spítalanna á höfuðborgarsvæðinu þannig að starfsemi Landspítala í Fossvogi flytji á Hringbraut. Samkeppnin er tvíþætt og tekur annars vegar til áfangaskipts skipulags lóðar Landspítala við Hringbraut í heild og hins vegar til útfærslu á fyrsta áfanga þess sem er spítalastarfsemi í 66 þúsund fermetra nýbyggingu sem skiptist í þrjá meginhluta:
  • Bráðakjarna með bráðamóttöku, myndgreiningu, gjörgæslu, skurðstofum og rannsóknarstofum.
  • Legudeildir með 180 rúmum sem öll eru í einbýli.
  • Sjúklingahótel með 80 herbergjum.

Við mat á innsendum lausnum verður m.a. litið til arkitektúrs, ytra- og innra skipulags, áfangaskiptingar, sveigjanleika, tækni og tæknikerfa, umhverfissjónarmiða, byggingarkostnaðar, rekstrarkostnaðar bygginga og heildarhagkvæmni starfseminnar. Er ráðgert að sá þáttur vegi 80-90% af heildareinkunn en tilboð í hönnunarþóknun vegi 10-20%.

Gert er ráð fyrir að það teymið sem verður hlutskarpast í samkeppninni vinni að hönnun verkefnisins fram að einkaframkvæmdarútboði en starfi að því loknu við verkefnisstjórn og hönnunarrýni með verkkaupa. Hvert teymi sem skilar inn tillögu sem uppfyllir skilyrði keppnislýsingar og tekin er til dóms í hönnunarsamkeppninni fær greiddar 15 milljónir króna, án virðisaukaskatts, fyrir vinnu sína við tillögugerðina í samkeppninni.

Áætlaður kostnaður við nýbyggingu Landspítalans er um 33 milljarðar króna á verðlagi í mars 2009. Standa vonir til að framkvæmdir við hana geti hafist á síðari hluta árs 2011 og er áætlað að þær standi fram á árið 2016.

Björn Zoëga, forstjóri Landspítala var vistaddur athöfnina í dag.
Forvalsnefnd hönnunarsamkeppninnar

Forvalsnefnd hönnunarsamkeppni nýs Landspítala skipuðu: Ingólfur Þórisson, formaður forvalsnefndar og fulltrúi í verkefnisstjórn nýs Landspítala, Bergljót S. Einarsdóttir, arkitekt hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, Gyða Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur á Landspítala og fulltrúi í verkefnisstjórn nýs Landspítala, Ingjaldur Hannibalsson, prófessor við Háskóla Íslands og fulltrúi í verkefnisstjórn nýs Landspítala, og Vilborg Hauksdóttir, skrifsstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu og fulltrúi í verkefnisstjórn nýs Landspítala.





Til baka