Háskólasjúkrahúsið við Hringbraut er ekki eina háskólasjúkrahúsið sem er í byggingu á Norðurlöndunum – og eins og á Íslandi eru nýju sjúkrahúsin staðsett miðsvæðis í þessum borgum.
Frankvæmdum við Akershus háskólasjúkrahúsið í Ósló er nýlega lokið. Það er stærra en væntanlegur Landspítali og mundi rúmast vel á Hringbrautarsvæðinu.
Í Þrándheimi er einnig verið að byggja háskólasjúkrahús sem verður stærra en Akershus og Landspítali. Þar rís á lóð gamla St. Olavs háskólasjúkrahússins í miðbæ Þránheims, og í tengslum við heilbrigðisvísindadeildir háskólans þar.