Skipulagsmál
Byggingaframkvæmdir eru bundnar í skipulagi með því að ákveðin möguleg byggingaráform eru afmörkuð með deiliskipulagsuppdrætti, þ.e. hvað má gera á ákveðnu svæði. Deiliskipulagsuppdrættir eru samþykktir af borgaryfirvöldum og öðrum lögboðnum skipulagsyfirvöldum. Þeir eru einnig kynntir almenningi með auglýsingu þar sem almenning er gefinn kostur á að koma sínum athugasemdum á framfæri.
Tillaga að deiliskipulagi lóðar Landspítala – háskólasjúkrahúss afmarkast af Eiríksgötu, Barónsstíg og nýju Hringbrautinni vestur að Njarðargötu og er hún unnin í nánu samstarfi við höfunda vinningstillögunnar í samkeppninni um skipulag lóðarinnar, en sá hópur samanstendur af íslensku arkitektastofunni Arkitektur.is, Verkfræðistofu Norðurlands, norsku verkfræðistofunni SWECO Grøner og dönsku arkitekta- og landslagsarkitektastofunum CF Møller og Schønherr Landskab.
Gengið var frá samkomulagi við fulltrúa hópsins um ráðgjöf við gerð deiliskipulagstillögu fyrir nýtt sjúkrahús og þarfagreiningu þann 1. febrúar 2006. Fljótlega eftir það hófst vinna við undirbúning deiliskipulagsferlisins með skipulagsyfirvöldum í Reykjavík.
Opnir kynningarfundir fyrir almenning
Opinn fundur um undirbúning og stöðu deiliskipulags var haldinn 15. júní 2006 í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Dagskrá fundarins
Í framhaldinu vinna ráðgjafar danska fyrirtækisins að gerð deiliskipulagstillögu í samvinnu við þarfagreiningarhópa Landspítala og Háskóla Íslands og skipulagsyfirvöld í borginni. Stefnt er að því að kynna þá vinnu á öðrum opnum fundi. Að lokinni úrvinnslu athugasemda er deiliskipulagstillagan lögð fyrir Skipulagsstofnun til samþykktar. Í framhaldinu þarf að auglýsa tillöguna í Stjórnartíðindum og má ætla að deiliskipulag spítalalóðarinnar hafi öðlast lögformlegt gildi á árunum 2008 eða 2009.