Markmið með byggingu nýs Landspítala - háskólasjúkrahúss

Stefna Landspítalans er að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu sem er studd öflugu kennslu- og vísindastarfi og stenst samanburð við önnur háskólasjúkrahús.
Heilbrigðisþjónusta
Skipulagning starfseminnar á að miðast við að þarfir sjúklingsins séu ávallt í fyrirrúmi á nútímalegu háskólasjúkrahúsi. Sjúklingurinn á að fá bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á og aðgengi að henni skal vera gott. Hönnun sjúkrahússins skal vera í samræmi við niðurstöður viðurkenndra rannsókna um áhrif skipulags og húsnæðis á árangur meðferðar (evidence based design).
Fyrirkomulag bygginga skal vera þannig að fólki finnist það velkomið og eigi auðvelt með að rata og komast leiðar sinnar.
Áhersla verði lögð á náttúrulega birtu (dagsljós) innandyra í rýmum sem sjúklingar og starfsmenn dveljast í og útsýni þar sem því verður við komið. Þetta er sérstaklega mikilvægt vegna norðlægrar legu landsins.
Hönnun skal miðast við að Landspítalinn noti nýjustu upplýsingatækni, hvað varðar bókasafn, ásamt rafrænni sjúkraskrá og PACS, og að spítalinn verði „pappírslaus“ þegar byggingu er lokið.
Kennsla og rannsóknir
Landspítalinn er háskólasjúkrahús þar sem lögð er áhersla á kennslu og rannsóknir og skal það endurspeglast í hönnun hans. Starfsmenn Landspítalans og Háskóla Íslands vinna mikið saman að rannsóknum og kennslu og oft er sami starfsmaður ráðinn til starfa hjá báðum stofnununum.
Aðstaða fyrir nemendur og kennara skal vera góð.
Starfsmenn
Aðstaða fyrir starfsmenn skal vera góð og vinnustaðurinn aðlaðandi. Þetta tekur til allra þátta, svo sem búningsaðstöðu, matsölu, dagsbirtu og hljóðvistar.
Við hönnunina skal leitast við að skapa miðju eða kjarna þangað sem starfsmenn spítala og háskóla sækja í kaffi og matartímum. Slík miðja stuðlar að öflugu háskólasjúkrahúsi og eykur miðlun þekkingar og lærdóms.
Rekstrarhagkvæmni og önnur mikilvæg atriði
Hönnunin skal taka mið af því að rekstur spítalans sé hagkvæmur en það komi fram í innri tengslum eininga, vöruflæði og notkun nýjustu tækni á sem flestum sviðum.
Miklar breytingar eiga sér stað í rekstri sjúkrahúsa og því þörf á að formgerð bygginga nýja spítalans bjóði upp á sveigjanleika í staðsetningu og stærð deilda, þannig að auðvelt sé að aðlaga þær breyttri starfsemi. Stöðlun rýma er ákjósanleg og að rýmin séu fjölnota.
Við hönnun nýs spítala skal taka sérstakt tillit til sýkingarvarna. Þetta á meðal annars við um öll tæknikerfi og skipulag. Þá þarf að gæta að sérstöðu LSH sem aðalspítala landsins og því að hann þarf að geta tekist einn og nánast óstuddur á við farsóttir.
Umhverfi sjúkrahússins þarf að vera áhugavert og aðlaðandi fyrir gesti og starfsmenn. Lögð er áhersla á græn svæði og útigarða og að bílum sé sem mest komið í bílastæðahús.