Hvers vegna þarf nýtt sjúkrahús?
Starfsemi Landspítala er á nærri tuttugu stöðum á höfuðborgarsvæðinu sem er mjög óhagkvæmt. Megin þungi þjónustunnar við sjúklinga er í Fossvogi og við Hringbraut. Af þessari dreifðu starfsemi hlýst mikið óhagræði bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk.
Núverandi húsnæði er margra áratuga gamalt, kostnaðarsamt í viðhaldi og hefur ekki þann sveigjanleika sem þarf til að mæta stöðugum breytingum í tækni og vinnufyrirkomulagi. Byggingar voru reistar fyrir mun minni og einfaldari starfsemi en er í þeim núna. Þær fullnægja alls ekki kröfum samtímans um þarfir sjúklinga, góða vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk og því síður lágmarksþörfum spítala framtíðarinnar. Margar sjúkrastofur eru óviðunandi og lítil aðstaða fyrir aðstandendur.
Þarfir, réttindi og kröfur sjúklinga hafa stóraukist en víða eru sjúklingar á fjölbýlum og mörg dæmi eru um að örfá salerni og baðherbergi séu á stórum legudeildum. Slíkar aðstæður stuðla að útbreiðslu spítalasýkinga sem breiðast út milli sjúklinga og starfsfólks og hafa valdið faröldrum á sjúkrahúsinu. Nýtt sjúkrahús þarf að vera með einbýlum og snyrtiaðstöðu fyrir hvert rúm.
Aðeins með nýju sjúkrahúsi næst að fullu sú hagkvæmni í rekstri og skilvirkni í þjónustu við sjúklinga sem stefnt var að með sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík árið 2000. Hægt yrði að nýta vinnuaflið betur og spara í rekstri, til dæmis með því að komast hjá tvöföldu vaktakerfi og tvöföldum tækjabúnaði í sambærilegri starfsemi.
Bráðastarfsemina þarf að færa saman. Tvær aðal bráðamóttökur eru reknar á spítalanum sem getur valdið vandkvæðum við greiningu mikið veikra sjúklinga.
Sjúklingar eru oft sendir milli húsa til að fara í skurðaðgerðir eða fá sérhæfða meðferð og eftir þær á gjörgæsludeildir sem eru á tveimur stöðum.
Háskólasjúkrahús hefur ríkar skyldur sem kennslu-, vísinda- og rannsóknarstofnun en býr við ófullnægjandi húsakost til að rækta þær sem skyldi. Úr því verður að bæta. Nálægð við háskólasamfélagið treystir undirstöður þekkingarsköpunar á sjúkrahúsinu og skapar um leið frjóan jarðveg til kennslu nemenda í heilbrigðisvísindagreinum.