Hönnunarteymið SPITAL varð hlutskarpast í samkeppni um áfangaskipt heildarskipulag fyrir nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut og frumhönnun 1. áfanga nýja spítalans og tengdrar háskólastarfsemi. Niðurstaða dómnefndar var kynnt við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi í dag.
Í umsögn dómnefndar er vinningstillögunni lýst sem sterkri hugmynd og höfundar nái vel því markmiði sínu að skapa „bæjarsamfélag sem myndar ramma um þverfaglegt samstarf ólíkra greina“. Orðrétt segir m.a. í niðurstöðu dómnefndar:
„Sveigjanleiki starfseininga er góður vegna lögunar bygginga og stöðlunar þeirra. Svigrúmi til stækkunar er haldið með sveigjanleika „bæjarhverfis“. Áfangaskipting hefur ekki í för með sér röskun á starfsemi spítalans á framkvæmdatíma. Með tilliti til stofnkostnaðar og rekstrar starfseminnar er tillagan metin hagkvæm.“
Þá er uppbrot starfseminnar í aðskildar byggingar meðfram götum talið ríma ágætlega við núverandi byggð á lóðinni og skírskotar jafnframt til vinningstillögu um skipulag Vatnsmýrarinnar. Barónsstígur er tengdur við nýja Hringbraut og afmarkast uppbygging spítala- og háskólastarfsemi á lóðinni austanvert við hann.
Þá kemur fram í umsögninni að uppbrot byggðar með stöllun bygginga, görðum, torgum og gróðri stuðli að fjölbreytileika á svæðinu og aðaltorgið fyrir framan gamla spítalann og aðalinngang nýja spítalans, skapi svæðinu sterka miðju. Stærð og staðsetning torgsins sé til þess fallin að þar þrífist skemmtilegt mannlíf. Grunnhugmynd tillögunnar er talin tryggja greiða umferð akandi, gangandi og hjólandi um spítalalóðina og aðkoma sjúkrabíla sé nokkuð greið.
Markmið um innra fyrirkomulag og tengingar næst í megindráttum í vinningstillögunni að áliti dómnefndar. Sjúklingahótel er ráðgert norðan við barna- og kvennadeild, í góðum tengslum við væntanlegan notendahóp. Rannsóknarstofum spítalans og háskólastarfsemi er komið fyrir í byggingum sunnan við nýju spítalabygginguna og gengur Læknagarður í endurnýjun lífdaga með nýbyggingum háskólahlutans. Þá er uppbygging háskólastarfsemi og Keldna til austurs á lóðinni í síðari áfanga verkefnisins sannfærandi að mati dómnefndar.
Niðurstaða dómnefndar á pdf |
Samkeppnislýsing |
12.3.2010 | |
Húsrýmisáætlun spítala |
12.3.2010 | |
Háskóli Íslands - Húsrýmisáætlun |
12.3.2010 |