 |
| Upphafsfundur í Borgarleikhúsinu. |
Undirbúningur fyrir hönnun nýs Landspítala hófst fyrir alvöru 1. febrúar 2006 með fundi hátt á þriðja hundrað starfsmanna spítalans og Háskóla Íslands með ráðgjöfum danska fyrirtækisins CF Møller, vinningshöfum hugamyndasamkeppninnar um skipulag spítalalóðarinnar. Danska fyrirtækið var ráðið til að sinna tilteknum verkefnum fyrir framkvæmdanefndina um byggingu nýs háskólasjúkrahúss og á fundinum undirrituðu Jón Kristjánsson, þáverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og fulltrúi C.F. Møller samkomulag sem nær annars vegar til gerðar deiliskipulagstillögu og hins vegar til vinnu vegna þarfagreiningar fyrir nýja sjúkrahúsið.
Þarfagreining
Fjörutíu og fjórir notendahópar tæplega 300 starfsmanna LSH og HÍ taka þátt í þarfagreiningu vegna hönnunar nýs sjúkrahúss. Hlutverk þeirra er að taka saman nákvæmt yfirlit yfir starfsemina sem á að fara fram á hinum nýja spítala og hvernig þeirri starfsemi verði best fyrir komið. Samráð er einnig við samtök sjúklinga. Að lokinni þarfagreiningu hefst endurskoðun vinningstillögunnar að skipulagi spítalalóðarinnar og byggist hún á þarfagreiningunni. Munu 6-8 ráðgjafar, sérfræðingar í starfsemi sjúkrahúsa og háskólastarfsemi, vinna við að setja fram þarfir nýs spítala miðað við árið 2025.