Skýrsla norsku sérfræðinganna    Spurt og svarað Staðsetning nýja Háskólasjúkrahúsins Markmið með nýjum spítala
 

 
Smelltu hérna til að skoða bæklinginn

PÓSTLISTI
Fáðu nýjustu fréttir
Netfang: *
Nafn:
Tek við HTML pósti
Velkomin á vef um byggingu nýs HÁSKÓLASJÚKRAHÚSS við Hringbraut
Hér verður leitast við að koma á framfæri upplýsingum um undirbúning og framvindu verkefnisins. 
Sendið okkur línu: ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir!



NÝJUSTU FRÉTTIR

27. ágúst 2010

Gengið hefur verið frá samningi um frumhönnun og gerð alútboðsgagna milli SPITAL hópsins, sem bar sigur úr bítum í sumar í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala, og hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., sem stofnað var í vor til að standa að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut.

09. júlí 2010

Hönnunarteymið SPITAL varð hlutskarpast í samkeppni um áfangaskipt heildarskipulag fyrir nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut og frumhönnun 1. áfanga nýja spítalans og tengdrar háskólastarfsemi. Niðurstaða dómnefndar var kynnt við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi í dag. Í SPITAL teyminu eru ASK arkitektar, Bjarni Snæbjörnsson arkitekt, Kanon arkitektar, Medplan, Teiknistofan Tröð, Landark, Efla verkfræðistofa, Lagnatækni og Norconsult.

08. júlí 2010

Niðurstaða hönnunarsamkeppni um byggingu nýs Landspítala og húsnæðis fyrir heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands verður kynnt á morgun, föstudaginn 9. júlí 2010,  kl. 11:00 á Háskólatorgi.


Önnur háskólasjúkrahús
í byggingu á Norðurlöndum

Nánar



Smelltu hérna til að skoða kynninguna 


VISSIR ÞÚ?
© Þórdís Erla Ágústsdóttir
... að daglega eru 58 sjúklingar svæfðir eða deyfðir af svæfingalæknum á Landspítalanum.