02. júní 2010
Rúmlega vika er nú þar til hönnunarteymin fimm skila inn tillögum að nýjum Landspítala því keppnistillögurnar eiga að liggja fyrir fimmtudaginn 10. júní 2010 og niðurstöður samkeppninnar verða kynntar föstudaginn 9. júlí.
Dómnefndin er þegar byrjuð að undirbúa sig og skipuleggja til hvaða ráðgjafa verður leitað um aðstoð en meðal þeirra sem munu ráðleggja henni lið er Johannes Eggen, norskur arkitekt með langa reynslu af hönnun sjúkrahúsa. Þá verður leitað umsagnar hjá flugmálayfirvöldum og Landhelgisgæslu vegna þyrluflugs, skipulagsyfirvöldum í Reykjavík vegna skipulagsmála, auk annarra ráðgjafa hverjum á sínu fagsviði. Síðast en ekki síst verður leitað umsagnar hjá völdum klínískum deildum Landspítala m.t.t. innra starfs spítalans.
Breytingar á dómnefnd
Níu manns eru í dómnefndinni sem heilbrigðisráðherra skipaði í mars. Í framhaldinu var hæfi allra dómnefndarmanna kannað samkvæmt stjórnsýslulögum og í kjölfar matsins var ákveðið að Helgi Hjálmarsson, arkitekt, tæki sæti í dómnefndinni í stað Jakobs Líndals arkitekts. Eftirsjá er af Jakobi því hann hefur reynst mjög áhugasamur um verkefnið en gott að fá jafn reynslumikinn arkitekt og Helga í dómnefndina í staðinn og er hann boðinn velkominn.
Í dómnefndinni eru, auk Helga, þau Guðrún Ágústsdóttir, fv. forseti borgarstjórnar og formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur, formaður, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi forseti borgarstjórnar, arkitektarnir Finnur Björgvinsson og Sigríður Ólafsdóttir, Aðalsteinn Pálsson verkfræðingur, Sigurlaug Lövdahl, skrifstofustjóri framkvæmda- og tæknisviðs Háskóla Íslands, Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala og Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala. Ritari ndómnefndar er Ásdís Ingþórsdóttir arkitekt.