08. júlí 2010
Úrslit hönnunarsamkeppni vegna nýs háskólasjúkrahúss kynnt á morgun
Niðurstaða hönnunarsamkeppni um byggingu nýs Landspítala og húsnæðis fyrir heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands verður kynnt á morgun, föstudaginn 9. júlí 2010, kl. 11:00 á Háskólatorgi.
Fimm hönnunarteymi tóku þátt í samkeppni um frumhönnun nýja spítalans og skiluðu tillögum sínum þann 10. júní sl. til Ríkiskaupa. Undanfarinn mánuð hefur níu manna dómnefnd, auk óháðra ráðgjafa, farið yfir tillögurnar.
Samkeppnin tók annars vegar til áfangaskipts skipulags lóðar Landspítala við Hringbraut í heild og hins vegar til útfærslu á 1. áfanga verkefnisins, frumhönnunar 66 þúsund fermetra nýbyggingar spítalans og 10 þúsund fermetra byggingar fyrir heilbrigðissvið Háskóla Íslands.
Tillögurnar verða almenningi til sýnis á Háskólatorgi fram eftir ágústmánuði.