15. júní 2010
Opinbert hlutafélag sem standa mun að undirbúningi og útboði á byggingu nýs Landspítala við Hringbraut tekur til starfa 1. júlí næstkomandi í kjölfar þess að Alþingi samþykkti fyrir helgi frumvarp fjármálaráðherra um stofnun félagsins. Markmiðið er síðan að ríkið taki bygginguna á langtímaleigu þegar byggingaverktaki hefur lokið umsömdu verki.
Góð samstaða var um
afgreiðslu málsins á Alþingi og var einungis ein veigamikil breyting gerð á frumvarpinu í meðförum þingsins. Hún lítur að því að leigusamningar sem fela í sér endurgreiðslu kaupverðs og þóknun til leigusala verða lagðir fyrir fjárlaganefnd og Alþingi áður en verkefninu verður endanlega hleypt af stokkunum. Markmiðið með þessu er að þingið geti lagt mat á hvort þær forsendur sem lagt var upp með standist og skal því leita samþykkis Alþingis með almennum lögum fyrir undirritun samninga að loknu útboði. Ekki verði því heimilt að hefja framkvæmdir fyrr en Alþingi hefur heimilað þær með lögum.
Áætlanir gera ráð fyrir að heildarkostnaður við verkið verði um 51 milljarður króna, þar af um 33 milljarðar króna til nýbygginga og 7 milljarðar króna í tækja- og búnaðarkaup. Auk þess er gert ráð fyrir að 11 milljarðar króna fari í endurbætur á núverandi húsnæði spítalans við Hringbraut sem nýtt verður áfram undir rekstur hans en ekki verður farið í þær endurbætur fyrr en nýbyggingin er tilbúin.
Dómnefnd að störfum
Vel miðar í samkeppninni um frumhönnun nýja spítalans. Hönnunarteymin fimm skiluðu tillögum sínum í síðustu viku og eru dómnefnd og ráðgjafar hennar nú að fara yfir tillögurnar en niðurstöður samkeppninnar verða birtar þann 9. júlí næstkomandi.
Samkeppnin tók annars vegar til áfangaskipts skipulags lóðar Landspítala við Hringbraut í heild og hins vegar til útfærslu á 66 þúsund fermetra nýbyggingu spítalans. Hluti af verkefninu var einnig að skoða frumhönnun á 10.000 fermetra byggingu fyrir Háskóla Íslands.
Gert er ráð fyrir að hönnun nýja spítalans hefjist af fullum krafti í ágúst á þessu ári.